
RÚNNI JÚL
Hérna fyrir neðan eru þau kennslumyndbönd sem mér hefur dottið í hug að gætu verið gangleg við að prjóna Rúnna Júl.
Silfurfit
Útaukningar til hægri og vinstri
Styttar umferðir - German short rows
Teygjanleg affelling
Ekki hika við að hafa samband ef þér finnst eitthvað vanta.
Silfurfit - Teygjanlegt uppfit
Silfurfit er einstaklega gott í húfur og hálsmál og í raun allstaðar þar sem þörf er á auka teygjanleika.
Útaukning til hægri og vinstri
Í uppskriftunum er talað um og útskýrt hvernig á að auka út til hægri og vinstri. Hérna er myndband sem sýnir það ansi vel.
Bubblumunstur
Hérna er myndband sem sýnir vel hvernig á að prjóna munstrið. Hafa skal þó í huga að bæta við nýjum lykkjum sem myndast við útaukningar.
Styttar umferðir - German short rows
Mér finnst þetta besta aðferðin við styttar umferðir, einföld og koma nánast engin göt.
Teygjanleg affelling
Mér finnst skipta máli að fella af þannig að eigandinn komist í flíkina, þetta er fín affelling fyrir það og ekki skemmir fyrir að hún lítur eins út og silfurfitið á tilbúinni flíkinni, ss. enginn munur á uppfiti og affellingu!